
Til þess að byrja góða daga verður maður stundum að vakna snemma. Í þessu tilviki kl. 6 í gærmorgun til að vera kominn í skólann kl. 7 að ná rútunni. Ferðinni var heitið til Bratislava í verksmiðju Volkswagen. Eftir að hafa fengið alveg hreint ágætis mat (samloka með reyktum lax og brauð með hráskinku og mozzorella, sem dæmi) var stutt kynning um verksmiðjuna. Þar eru framleiddir VW Touareg, yfirbyggingin á Porsche Cayenne (sem eru síðan fluttir til Leipzig til þess að fá vél, gírkassa og dekk), Audi Q7 og Skoda Oktavia. Vegna þess að ég lenti í síðasta hópnum í skoðunarferðinni urðum við að bíða í móttökubyggingunni í smá stund.