Þá er maður loksins kominn út. Þetta er bara hreint ágætt. Bý hérna með lettneskum stráki sem heitir Kristaf. Það er búið að taka tíma sinn að koma netinu í húsinu í gott horf en það hafðist. Eftir að hafa lent og verið sóttur á lestarstöðina, þurfti nú að byrja á því að kaupa rúm handa mér. Þannig við fórum í eitthvað hús þar sem heil tvö voru keypt fyrir €35 (grjóni, þú veist hvað það þýðir). Þar sem karlinn á pínulítinn bíl þurftum við að binda annað þeirra við þakið.
