Recently in Ævintýri Category

Semmering

| 4 Comments
... heitir bær sem ég, fjórir frakkar, ítali og letti fórum með lest til í gærmorgun.  Þar er skíðasvæði en við gengum bara um staðinn.

Myndir í hlekknum...

Besti Skóladagur allra tíma?

| 1 Comment
I went to VW Bratislava and all i got was this lousy toy car!Til þess að byrja góða daga verður maður stundum að vakna snemma.  Í þessu tilviki kl. 6 í gærmorgun til að vera kominn í skólann kl. 7 að ná rútunni.  Ferðinni var heitið til Bratislava í verksmiðju Volkswagen.  Eftir að hafa fengið alveg hreint ágætis mat (samloka með reyktum lax og brauð með hráskinku og mozzorella, sem dæmi) var stutt kynning um verksmiðjuna.  Þar eru framleiddir VW Touareg, yfirbyggingin á Porsche Cayenne (sem eru síðan fluttir til Leipzig til þess að fá vél, gírkassa og dekk), Audi Q7 og Skoda Oktavia.  Vegna þess að ég lenti í síðasta hópnum í skoðunarferðinni urðum við að bíða í móttökubyggingunni í smá stund.

Down under

| 2 Comments
Eftir sæmilega hepnnaða skautaferð í gærkvöldi for ég að hitta Agnar á Down Under, sem er ástralskur bar. Þegar ég kom úr neðanjarðarlestinni var ég ekki viss hvar staðurinn væri, þannig ég brá á það ráð að spyrja leigubílstjóra.