Eftir sæmilega hepnnaða skautaferð í gærkvöldi for ég að hitta Agnar á Down Under, sem er ástralskur bar. Þegar ég kom úr neðanjarðarlestinni var ég ekki viss hvar staðurinn væri, þannig ég brá á það ráð að spyrja leigubílstjóra.
Þeir eru oft á tíðum eru staðsetningarlega alvitrir. Það fyrsta sem hann
spurði mig var hvort þetta væri hommabar :S Ég hvað svo ekki vera. En
í staðinn fyrir að fara með mig á Down under fór hann með mig beint á
hommabar, til þess að spyrja hommana hvort þeir vissu hvar hann væri,
Mér leist heldur illa á blikuna að þurfa fara inn á hommabar, sem
var þar að auki alveg troð fullur af austurrískum hommum. En þeir
vissu nú ekki hvar Down under væri en sögðu aftur á móti að þeir vissu
um alla hommabari í Vín. Þeir létu mig fá einhvern bækling um
skemmtistaði, sem ég hélt í fyrstu að væri kannski sniðugt að eiga til
að vita um aðra staði, þangað til ég leit á forsíuna og sá hálfnakinn
blámann og skrifað í stórum rauðum æpandi stöfum, Coxx! Þannig ég lét
það vera. Þá snéri ég mig aftur að leigubílstjóranum sem hringdi að lokum í austurríska 118. Þar með var staðurinn fundinn.
Agnar og ég skemmtum okkur konunglega, að vanda ásamt öðrum skiptinemum sem voru með honum í hóp. Þar sem við nenntum ekki að taka næturstrætó eða leigubíl heim héldum ætluðum við að reyna að hanga til 5:30 þegar U-bahninn fer að ganga aftur. Það fór ekki betur en svo að við ætluðum að finna stað á Gürtellinu, sem er hringvegur sem fer í kringum miðju Vínar. Þar eiga staðir víst að vera opnir mikið lengur. Eftir sirka klukkustunda langa göngu nennti ég þessu ekki lengur og hjóp með Agnari í næsta leigubíl og skutlaði okkur heim til mín. Síðan hef ég verið í allan dag að komast yfir þynnkuna og búinn að drekka tvo lítra af vatni! Ég og Walter pöntuðum okkur ágætist pizzu af veitingastað sem er hérna beint fyrir neðan okkur og ég er á leiðinni að fara að horfa á Austrailia, sem ég náði mér í í gær.

Uss þú verður að henda inn myndum af köppunum og umhverfinu! Hvenær byrjar síðan skólahelvítið?
Kv,
Þorsteinn og Guli
þú ert ekkert smá snöggur að kommenta, ekki liðinn hálf mínúta frá því ég færi inn og þú ert bara mættur! ég geri það við tækifæri. Skólinn byrjar síðan í næstu viku!
Leave a comment