Íbúðarfélaginn minn, Kristaps, benti mér á þetta frábæra myndband. Gaurinn átti víst að hafa reynt að senda það inn í eurovision sem framlag ríkisins, Molvaniu.
febrúar 2009 Archives
+43 676 3112495
þá er það komið á hreint
þá er það komið á hreint
Eftir sæmilega hepnnaða skautaferð í gærkvöldi for ég að hitta Agnar á Down Under, sem er ástralskur bar. Þegar ég kom úr neðanjarðarlestinni var ég ekki viss hvar staðurinn væri, þannig ég brá á það ráð að spyrja leigubílstjóra.
Continue reading Down under.
Þá er maður loksins kominn út. Þetta er bara hreint ágætt. Bý hérna með lettneskum stráki sem heitir Kristaf. Það er búið að taka tíma sinn að koma netinu í húsinu í gott horf en það hafðist. Eftir að hafa lent og verið sóttur á lestarstöðina, þurfti nú að byrja á því að kaupa rúm handa mér. Þannig við fórum í eitthvað hús þar sem heil tvö voru keypt fyrir €35 (grjóni, þú veist hvað það þýðir). Þar sem karlinn á pínulítinn bíl þurftum við að binda annað þeirra við þakið.
Þá virðist sem að húsnæðismálin hafi bara leysts. Allt þökk sé
facebook. Þetta mun vera einn austurrískasti maður sem ég hef séð (sjá
mynd). Við verðum bara að vona að hann eigi ekki kjallara... maður fer
nú varlega með þann brandara úti. Það gleymist seint hvað gerðist
síðast þegar austurrískur maður reiddist fyrir 70 árum!
Þá er það síðasta helgin á landinu bláa og það á að taka hana með stæl! Hún byrjar, hvorki meira né minna en í vísindaferð hjá ekki ómerkilegra fyrirtæki en Marel. Hvað næstu dagar bera í skauti sér veit enginn! Svo er það bara mánudagurinn og á slaginu 9:00 ættu hjól lífsins flugvélarinnar að vera farin að snúast.
Continue reading Jæja!.
